Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Hjálparsagnir hjartans

  • Höfundur Péter Esterházy
  • Þýðandi Jóna Dóra Óskarsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Á blaðsíðum með sorgarrömmum lýsir sonur síðustu dögum móður sinnar og útför hennar á hinum ofurveraldlegu tímum í lok tuttugustu aldar. Í því tilfinningalega umróti sem fylgir vaknar rödd móðurinnar og í nýstárlegum umsnúningi syrgir móðirin látinn son sinn ...

Mögnuð bók ungverska framúrstefnuhöfundarins Péters Esterházy um sorg og dauða, ástina og lífið, í íslenskri þýðingu Jónu Dóru Óskarsdóttur

Péter Esterhazy (1950–2016) er jafnan talinn mikilvægasti og áhrifamesti póstmóderníski rithöfundur Ungverjalands. Hann stundaði nám í stærðfræði en gaf út sína fyrstu bók árið 1976 og helgaði sig ritstörfum eftir það. Hjálparsagnir hjartans er fyrsta bókin sem kemur út eftir hann á íslensku. Meðal annarra verka hans má nefna stórvirkið Harmonia Caelestis (2000).

Jóna Dóra Óskarsdóttir (1956–) hefur þýtt bækur jöfnum höndum úr ensku, frönsku, spænsku, hollensku, ungversku og Norðurlandamálunum.