Hjarta mitt
um mikilvægi hjartastöðvarinnar
Fjallað er um mikilvægi hjartastöðvarinnar og hvernig opnun hennar leiðir til tengingar við innra Sjálfið. Margir halda hjarta sínu lokuðu vegna sársauka og erfiðrar reynslu. Sagt er frá hvernig unnið er að opnun hjartans, sem færir okkur inn í heim kærleika, visku, góðvildar, fegurðar og friðar. Bókin o.fl. bækur höfundar fást á www.avalon.is
Í bókinni Hjarta mitt fjallar höfundur um mikilvægi hjartastöðvarinnar og hvernig opnun hennar leiðir til tengingar við innra Sjálfið, sálina.
Með skrifum sínum um ástæður þess að margt fólk heldur hjarta sínu lokuðu, m.a. vegna sársauka og erfiðrar reynslu, og hvernig má yfirstíga þær hindranir sem felast í lokun þess, leiðir höfundur lesendur nær hjarta sínu og þeirri visku sem þar býr.
Opnun hjartans færir okkur nýjan heim þar sem eining, kærleikur, góðvild, viska, fegurð og friður er leiðarljósið.
Í frásögninni segir höfundur jafnframt frá áralangri reynslu sinni í að vinna að opnun hjartans.
Eldey Huld er kennari og félagsráðgjafi. Hún hefur lagt stund á guðspeki í 40 ár og haldið ótal námskeið í heilun og hugleiðslu.
Eldey Huld starfrækir Avalon, miðstöð kennslu, heilunar og ráðgjafar.
Upplýsingar um fleiri bækur og erindi hennar eru á www.avalon.is