Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Hyldýpi

  • Höfundur Kári Vatýsson
Forsíða kápu bókarinnar

Hyldýpi er spennutryllir sem heldur lesandanum frá fyrstu blaðsíðu. Dögg Marteinsdóttir er ungur læknir sem starfar í Súdan. Kristján er nýbúinn að stofna eigin lögfræðistofu í Reykjavík en verkefnin láta á sér standa. Pawel á von á barni með ungri íslenskri kærustu. Líf þessara þriggja ólíku einstaklinga eiga eftir að tvinnast saman.

Dö0gg og Sarah, sem er ungur og frakkur læknir frá Brooklyn í New York, starfa báðar fyrir Lækna án landamæra og verða nánar vinkonur meðan þær takast á við hörmungarnar í flóttamannabúðunum þar sem þær starfa. Dögg fellir hug til yfirlæknis á svæðinu sem heitir Omar Mohammed. Dag einn fara Omar, Sarah og Dögg í sendiför til borgarinnar Nyala en sú för hefur hræðilegar afleiðingar í för með sér. 

Mitt í hringiðu afkomuótta Kristjáns og kvíðakasta fær hann í hendurnar tvö athyglisverð mál. Annars vegar mál fylgdarlauss barns frá Súdan og hins vegar líkamsárásarmál ungs Pólverja sem heitir Pawel Nowak en sá á vægast sagt vafasama fortíð. 

Eitt örlagaríkt kvöld eltir fortíð Pawels hann uppi og áður en hann veit af hafa meðlimir harðsvíraðra glæpasamtaka hann undir smásjánni. Uppgjör við fortíðina dregur dilk á eftir sér og Pawel dregst inn í atburðarás sem hann ræður engan veginn við. 

Líf þessara þriggja ólíku einstaklinga eiga eftir að tvinnast saman. Með afdrifaríkum hætti.