Í húsi ömmu Rósu
Forvarsla minninganna
Rósa María Þóra Guðmundsdóttir (1917-2010) átti reyfarakennda ævi framan af og tilheyrði efri stétt Reykvíkinga á 3. og 4. áratug 20. aldar. Hér er lagst í rannsóknir á híbýlum Rósu í Reykjavík og á Akranesi. Lesandinn er leiddur um hvert herbergið á fætur öðru; hugrenningartengsl opna á harmrænar fjölskyldusögur á tímabilinu 1917 til 1983.
Hér skrifar María Karen skáldævisögu um líf ömmu sinnar og notar til þess allsérstaka nálgun. Hún lagðist í nákvæmar rannsóknir á híbýlum Rósu í Reykjavík og á Akranesi og leiðir svo lesanda af mikilli natni og frásagnargleði um hvert herbergið á fætur öðru, alla leið neðan úr kjallara upp á háaloft.
Þessi rannsóknaraðferð kallar fram sögu hlutanna, tilfinningar og minningar, bæði hjá Rósu og höfundi sem bjó lengi í nálægð við ömmu sína á Akranesi. Hugrenningartengsl sem þessi opna á fjölskyldusögur með öllum sínum boðaföllum sem íslenskt samfélag gekk í gegnum á tuttugustu öld. Frásögnin spannar að mestu tímabilið frá 1917 til 1983.