Innlyksa
Í Innlyksa sameinast þrjár höfundaraddir í margslungnum frásögnum af ókennilegum veruleika. Saman takast sögurnar á við þungamiðju verksins sem er einangrun, einmanaleiki og innilokunarkennd.
Smásagnasafnið Innlyksa er samvinnuverkefni þriggja höfunda sem hafa vakið athygli síðustu ár með fjölbreyttum skáldsögum og ljóðabókum. Það eru þær Díana Sjöfn Jóhannsdóttir, Rebekka Sif Stefánsdóttir og Sjöfn Asare.
Safnið inniheldur fimmtán sögur og í þeim er lesendum varpað ofan í lýsingar á bláköldum hversdegi yfir í hryllingsraunsæi og framtíðarskáldskap. Hvað gerir manneskjan þegar öll sund eru lokuð?
„„Sögur sem smjúga inn að merg. Raunsæi og annarleiki fléttast saman á áhrifaríkan hátt í anda Svövu Jakobsdóttir.“ “
Berglind Ósk, rithöfundur
„"Grípandi sögur og samspilið áhugavert á milli höfundanna þriggja."“
Steinar Bragi