Jólablik
Jólasaga og samverudagatal
Rúnar og amma Kristjana eiga saman notalegar stundir í aðdraganda jólanna. Á hverri opnu eru valin orð útskýrð til að efla orðaforða barna. Með bókinni fylgir jólapoki með myndum sem tengjast sögunni og hægt er að festa á dagatal fremst í bókinni. Þannig verður lesturinn að skemmtilegri niðurtalningu til jóla fyrir alla fjölskylduna.
Jólin verða enn notalegri með Rúnari og ömmu Kristjönu.
Í þessari fallegu og hugljúfu bók fylgjumst við með Rúnari og ömmu Kristjönu eiga saman dýrmætar stundir í aðdraganda jólanna. Þau bralla ýmislegt skemmtilegt sem börn og fullorðnir geta sjálfir prófað og þannig skapað góðar samverustundir.
Bókin sameinar notalega jólasögu, leik og málörvun á skemmtilegan hátt. Á hverri opnu eru valin orð úr sögunni tekin sérstaklega fyrir og útskýrð til að efla orðaforða barna og vekja áhuga á tungumálinu.
Með bókinni fylgir lítill jólapoki með myndum sem tengjast köflum sögunnar. Fremst í bókinni er dagatal þar sem hægt er að festa myndirnar með frönskum rennilás og telja þannig niður dagana fram að jólum.
Hlýleg bók sem býður börnum og fjölskyldum þeirra upp á lestur, leik, lærdóm og notalega samveru á aðventunni.