Kærulausar kannanir

Forsíða kápu bókarinnar

Kærulausar kannanir er samansafn örsagna og vangaveltna konu sem mætir ofur hversdagslegum augnablikum og sígildum stefjum ýmist undrandi, full efasemda, með háði eða af einlægni.

Örsögur þar sem höfundur leyfir lesandanum að skyggnast inn í hversdaginn sinn. Með kímni og léttleika að vopni skoðar hún nærumhverfi sitt hvort sem það er hún sjálf, fjölskyldan, nágrannar eða náttúran og spyr glettinna spurninga. Hversdagurinn er endurtekningasamur og gæti virst þurr en í athugunum höfundar sjáum við að hann er spennandi, síbreytilegur og oft fyndinn.