Kleópatra

Ævi, ástir og örlög síðustu drottningar Egyptalands

Forsíða bókarinnar

Ævi Kleópötru VII, síðustu drottningar Egyptalands, var stórbrotin örlagasaga. Fornar heimildir herma að hún hafi verið íðilfögur og undanfarin tvö þúsund ár hefur verið haft fyrir satt að engin kona hafi nokkru sinni jafnast á við hana að fegurð. Enginn veit hins vegar með vissu hvernig þessi meinta fegurðardís leit út.