Ævintýraheimur Evolytes Kókoshnetukeppnin

Forsíða kápu bókarinnar

Logi og Stampi eru bestu vinir, en þegar vinir keppa getur allt gerst! Báðir telja sig eiga fleiri kókoshnetur. En hvor hefur rétt fyrir sér?

Kókoshnetukeppnin er spennandi og skemmtileg lesbók úr ævintýraheimi Evolytes fyrir 5–10 ára börn. Lestur og stærðfræði fléttast saman í fjörugu ævintýri þar sem eldfimi Loga setur strik í reikninginn.

Kókoshnetukeppnin er ríkulega myndskreytt lesbók með stuttum aðgengilegum texta sem hentar vel börnum sem eru að byrja að lesa sjálf. Bókin er hluti af nýjum bókaflokki úr ævintýraheimi Evolytes þar sem kunnuglegar persónur lenda í fjörugum ævintýrum.

Í bókaflokknum fléttast stærðfræði inn í söguþráðinn á leikandi hátt. Þegar kókoshneturnar eru orðnar svo margar að erfitt er að halda utan um fjöldann þarf að finna snjallari leið til að telja þær. Með því að raða þeim í tugi verður stórt magn allt í einu viðráðanlegt og úrslitin í kókoshnetukeppninni færist nær.

Aftast í bókinni eru einfaldar spurningar úr sögunni sem gefa færi á að ræða saman um lesturinn og ævintýrið.