Krákustígar

Sonnettusveigur

Forsíða kápu bókarinnar

Krákustígar fjalla í 15 erindum um ævi konu sem neitar að láta aðra marka sér veginn, jafnvel þótt hún villist um stund í ástarþoku og þurfi að redda fleiru en sanngjarnt getur talist. Hún hrasar, syrgir, hlær, lærir, reisir sig við og heldur áfram, keik, að þræða sína eigin leið.

Bókin er sonnettusveigur. Fimmtán tengdar sonnettur þar sem lokalína hverrar sonnettu verður upphaf þeirrar næstu og síðasta ljóðið bindur hringinn saman. Með kímni, beittum hrynjanda og mjúkum myndum verður til lítil en kjarnmikil saga um frelsi, sjálfsvirðingu og þann grýtta veg sem manneskjan þarf stundum að ganga til að verða heil.

Krákustígar er ríkulega myndskreytt ljóðabók um konu sem lætur lífið kenna sér – en ekki beygja sig.