Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Kvíðakynslóðin

  • Höfundur Jonathan Haidt
  • Þýðandi Hafsteinn Thorarensen
Forsíða kápu bókarinnar

Geðheilsa barna og unglinga hefur versnað svo um munar. Tíðni þunglyndis, kvíða, sjálfsskaða og sjálfsvíga hefur aukist verulega á síðustu árum og í sumum tilvikum er um tvöföldun að ræða. Hvað veldur þessari þróun? Hér leitar félagssálfræðingurinn Jonathan Haidt að ástæðunum á bakvið aukninguna. Djúpvitur, mikilvæg og heillandi metsölubók.

Hann rannsakar eðli bernskunnar fyrr og nú og þá miklu sundrungu sem varð þegar við fórum frá „barnæsku leiksins“ í „barnæsku símans“. Barnæska leiksins byrjaði að hnigna strax á níunda áratug síðustu aldar en með tilkomu snjallsíma hefur hún nánast verið þurrkuð endanlega út. Við ofverndum börnin okkar í raunheimum þar sem þau ættu raunverulega að fá fremur ábyrgð og sjálfstæði til að þroskast í hæfa fullorðna einstaklinga sem vegnar vel en vanverndum þau hrapallega í sýndarheimum. Í bókinni útskýrir hann hvernig þessi þróun hefur truflað félags- og taugaþroska barna sem veldur allt frá svefnleysi til athyglisbrests og fíknar til einmanaleika og sjálfskaða.

Haidt setur fram skýrt ákall til aðgerða í bókinni. Hann lýsir skrefum sem foreldrar, skólar, tæknifyrirtæki og yfirvöld geta stigið til að binda enda á faraldur geðsjúkdóma og um leið endurheimt manneskjulegri æsku fyrir börnin okkar og þar af leiðandi bjartari framtíð.

Kvíðakynslóðin gæti verið ein mikilvægasta bók okkar tíma.