Landslag kynslóðanna
Smáprósar og ljósmyndir frá æskuslóðum höfundar þar sem örnefni og minningarbrot fléttast saman. Lesandinn er leiddur inn í heim bernskunnar á ferðalagi sem liggur frá bökkum Jöklu til hólmanna í Mississippi og á vegi verða skepnur, menn og mýrarfiskar.
Örnefni á æskuslóðum í Hróarstungu á Fljótsdalshéraði kveikja hugrenningar hjá höfundinum þar sem minningar renna saman við sögurnar sem búa í landslaginu. Í stuttum textum er lesandinn leiddur inn í sakleysi bernskunnar og horfinn tíma. Ferðalagið liggur frá bökkum Jöklu til hólmanna í Mississippi og á vegi verða skepnur, menn og mýrarfiskar.
Ljósmyndir af völdum stöðum og gengnum kynslóðum fléttast við smáprósana og ramma inn svarthvíta veröld sem var.
Bókin er fyrsta útgefna skáldverk höfundar í þrjátíu ár en árið 1996 hlaut hann Bókmenntaverðlaun Halldórs Laxness fyrir smásagnasafnið Lífsklukkan tifar.