Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Landsnefndin fyrri. Den islandske Landkommission 1770-1771, VI

Forsíða bókarinnar

Skjöl Landsnefndarinnar fyrri gefa einstæða innsýn í íslenskt samfélag um 1770, en nefndin ferðaðist um Ísland og safnaði upplýsingum um land og þjóð. Í sjötta og síðasta bindi eru birt ýmis vinnugögn nefndarinnar þar sem hún tók fyrir efni eins og torfskurð, kálgarða eða sauðfjárpestina og ólík svör almennings, presta og embættismanna um þau.

„Þeir stinga hins vegar upp á, til að hemja alltof mikinn brennivínsinnflutning og drykkju, að leggja skuli 8 sk. kúrant aukagjald á hvern pott af brennivíni sem fluttur er inn og 12 sk. á hvern pott af frönsku víni.“ Þannig hljóðaði ein af tillögum Landsnefndarinnar fyrri um viðreisn Íslands árið 1771. Í bókinni eru birt ýmis vinnugögn nefndarinnar sem urðu til eftir að nefndin var komin til Kaupmannahafnar. Þetta er sjötta og síðasta bindið þar sem öll frumskjöl Landsnefndarinnar eru birt.

Heildarútgáfa á skjölum Landsnefndarinnar fyrri er birt í sex bindum sem gefin voru út á árunum 2016–2022. Frumbréfin eru bæði á íslensku og dönsku eins og þau voru þegar þau voru send Landsnefndinni á sínum tíma. Flest íslensku bréfin voru þýdd á sínum tíma til notkunar fyrir nefndina af ritara hennar Eyjólfi Jónssyni. Íslensku bréfin sem bárust henni skömmu fyrir brottför af landinu voru þó aldrei þýdd, og er bætt úr því hér í tengslum við útgáfuna. Bókunum fylgja fræðilegar greinar, ítarlegar skýringar, nafna- og efnisorðaskrár. Allar greinar og skýringarefni er bæði á íslensku og dönsku.

Ritröðin á sér veglega vefsíðu, www.landsnefndin.is