Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Laxá

Lífríki og saga mannlífs og veiða. Veiðistaðalýsingar í Mývatnssveit og Laxárdal

  • Ritstjóri Jörundur Guðmundsson
  • Höfundar Sigurður Magnússon, Ásgeir Hermann Steingrímsson, Baldur Ó. Svavarsson, Baldur Sigurðsson, Jón Aðalsteinn Þorgeirsson, Jón Benediktsson, Gísli Már Gíslason og Stefán Jónsson
Forsíða kápu bókarinnar

Veiðistaðalýsing fyrir Laxá í Mývatnssveit og Laxárdal ásamt þáttum um lífríki, sögu og mannlíf við þessa merku silungsveiðiá. Frásagnir af merku fólki og náttúrufari árinnar sem nýtur alþjóðlegrar friðunar.

Auk veiðistaðalýsinga er rakin saga stangaveiða á báðum svæðum. Sagt frá merkum náttúruminjum og saga ábúenda jarða við ána og frásagnir veiðimanna fyrr á tíð og í nútímanum. Þá er gerð grein fyrir þróun áhalda og búnaðar við veiðarnar, sagð frá deilumálum kringum virkjun árinnar og rannsóknum líffræðinga á lífríki hennar.. Rakin er saga frumherja við veiðarnar og raktar minningar ábúenda og veiðimanna.