Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Leyndardómur varúlfsins

Forsíða bókarinnar

Í bænum Eldsala loga skógareldar. Eldsvoðarnir bera þess merki að vera viljaverk einhvers.

Á kvöldin heyrir Herbert hrollvekjandi ýlfur og sér stórar skepnur sem líkjast hundum bregða fyrir í skóginum. Skyndilega eru Herbert og Sallý vinkona hans flækt í ráðgátu sem er mun ískyggilegri en nokkurn gat grunað.

Munu þau geta bjargað Eldsala?

Leyndardómur varúlfsins er sjálfstætt framhald metsölubókarinnar Uppvakningasótt.

Kristina Ohlsson er einn vinsælasti spennusagnahöfundur Norðurlanda. Ungmennabækur hennar (fyrir 8–13 ára) hafa líka slegið í gegn og verið þýddar á fjölda tungumála.

Specsavers-verðlaunin í Svíþjóð fyrir bestu glæpasögu handa börnum 2017.

„Æsispennandi og ógnvekjandi. 5 stjörnur af 5.“ – Kamratposten