Lísa og Líó

Stelpan og geimrefurinn

Forsíða kápu bókarinnar

Lísa er nýflutt með móður sinni til Lóuvíkur og þarf að byrja í nýjum skóla. Fyrir einhverfa stelpu sem sækir í öryggi, fasta rútínu og kunnuglegt umhverfi er þetta hræðilegt! Bókin er gefin út í samstarfi við Einhverfusamtökin.

Á leiðinni í skólann fyrsta daginn hittir hún Líó, geimref sem hefur strandað á jörðinni. Hann upplifir sig jafn framandi í nýju umhverfi og Lísa og með þeim myndast óvænt vinátta.

Saman takast þau á við óvissu, nýjar aðstæður og samskipti sem reynast ekki alltaf einföld. Lísa útskýrir meðal annars hversu mikla orku það getur tekið að lesa í aðstæður, laga sig að væntingum annarra og halda uppi grímu yfir skóladaginn - og hvers vegna hún þarf síðan ró og næði til að hlaða sig á ný.

Höfundur bókarinnar, Daniela Schreiter er þýskur myndasöguhöfundur og teiknari. Hún er sjálf einhverf og hefur skrifað fleiri myndasögur um hvernig það er að hafa öðruvísi sýn á heiminn, skynjun og tilfinningar. Verk hennar einkennast af næmni, húmor og virðingu fyrir ólíkri upplifun barna.

Bókin er gefin út í samstarfi við Einhverfusamtökin.