Mæðrun

sýnisbók

Forsíða kápu bókarinnar

Mæðrun – sýnisbók er safn 12 smásagna sem snúast á einn eða annan hátt um mæður sem elska, vernda, læra og leiðbeina. Í sögunum er fjallað um kröfur, staðalímyndir og áskoranir sem ýtt geta mæðrum til þess að grípa til örþrifaráða. Móðurhlutverkið er margbrotið, dýrmætt og krefjandi og getur jafnvel náð út fyrir gröf og dauða.

Keppnin um bestu móðurina er haldin í beinni útsendingu frá Hörpu. Drottning í ríki sínu fær rýting í bakið. Svell brestur og samtímis eitthvað innra með móðurinni. Fögur tengdamóðir klofnar í tvennt vegna fjölskyldudeilna.Þetta er meðal annars það sem sögurnar í Mæðrun -sýnisbók fjalla um. Steinunn Sigurðardóttir rithöfundur segir þetta um bókina: „Sögurnar í Mæðrun eru stórhlægilegar, átakanlegar og allt þar á milli. Í einni lendir yfirkeyrð húsmóðir í fáheyrðum vandræðum við að kaupa sér spítt og í annarri elur móðir brjóstabarnið sitt á geðdeild. Hér eins og oftar kveðast á depurð og kostulegheit. Látið þessar ofurnæmu og spennandi meistarasögur ekki fram hjá ykkur fara, þær koma hressilega á óvart og opna glugga út í nýjar veraldir. ”

.