Maja og sængurkrílin

Forsíða kápu bókarinnar

Maja fær sæng í afmælisgjöf. Ekki beint spennandi gjöf… þar til nóttin kemur. Þegar hún getur ekki sofnað vakna sængurkrílin sex, lítil loðin kríli sem eru alveg eins og tilfinningarnar okkar. Hvert þeirra kennir henni öndunaræfingu sem róar hugann. Hlý saga sem gefur börnum verkfæri til að takast á við tilfinningar sínar.

Fyrir 33 árum skrifaði María Krista Hreiðarsdóttir þessa sögu handa börnunum sínnm. Handritið lá svo í skúffu í rúm þrjátíu ár, þar til nú. Á þeim tíma hefur María eignast fjögur barnabörn og hana langaði að laga söguna að nútímanum og ört stækkandi veröld sem er í senn spennandi og flókin.

Maja á fimm ára afmæli og fær sæng í afmælisgjöf frá Kidda frænda. Hún er ekki hrifin, en um kvöldið, þegar hausinn er á fullu og svefninn lætur bíða eftir sér, fer sængin að hreyfast. Upp úr henni skjótast Hugi, Dreyma, Örvi, Uggi, Pirri og Glóa, sængurkrílin sex, hvert með sinn lit og sína skapgerð.

Krílin eru eins og tilfinningarnar okkar: Hugi hugsar mikið og hefur áhyggjur, Örvi er fullur af orku, Uggi er hræddur, Pirri er í vondu skapi og Glóa dreifir gleði. Hvert þeirra kennir Maju æfingu sem hjálpar þegar hugurinn ærslast: blómaöndun, blöðruöndun, kanínuöndun, sofandi björn og skjaldbökuöndun. Maja kennir þeim í þakkarskyni spagettíæfinguna hennar ömmu.

Æfingarnar eru einfaldar og börn geta gripið til þeirra þegar þau eru æst, pirruð, hrædd eða eiga erfitt með að róa sig, og fullorðna fólkið getur nýtt sér þær í leiðinni. Aftast í bókinni er farið yfir hvaða tilfinningu hvert kríli stendur fyrir og krílin fela sig í myndunum fyrir glögga lesendur.