Mamma - sagan þín og Pabbi - sagan þín

Forsíða kápu bókarinnar

Bækur sem geyma minningar og visku og tengja kynslóðir.

Einstakar útfyllingabækur sem leiða mæður og feður á skemmtilegan hátt í gegnum það ferli að skrifa eigin sögu, varðveita minningar og deila visku sinni með börnum sínum sem nú eru komin á fullorðinsár.

Bækurnar eru seldar í hulstri, eru með harðspjalda kápu og hágæða pappír til að skrifa á. Óútfylltar eru bækurnar fallegar og persónulegar gjafir til mæðra og feðra á öllum aldri. Útfylltar bækurnar verða síðan að dásamlegri gjöf og einstökum fjársjóði fyrir börn og jafnvel barnabörn og komandi kynslóðir.

Í bókunum eru 11 kaflar með fjölmörgum skemmtilegum spurningum sem útfærðar eru á fjölbreyttan hátt, ásamt persónulegum frásögnum frá þjóðþekktum mæðrum og feðrum úr atvinnu- og íþróttalífinu. Einnig er pláss til að deila uppskriftum og heimilisráðum.

„Hver var móðir mín áður en hún varð móðir? er spurning sem ég fór að velta fyrir mér eftir að ég tók sjálf fyrstu sporin í móðurhlutverkinu. Mamma hafði alltaf verið “bara” mamma. Kona sem átti að vera úr stáli, styðja, hvetja, græja, redda, fæða, klæða og þar eftir götunum. Með árunum kviknuðu spurningar um hvernig lífsreynsla móður minnar hafði mótað hana - bæði sem konu og móður. Ég lagði við hlustir, fór að skilja hana betur og sjá hana sem konu með sögu sem er lengri en mín eigin. “

Heiðbjört Ósk Ófeigsdóttir, höfundur Mamma - sagan þín