Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Roald Dahl bækurnar Matthildur

Sérútgáfa - takmarkað upplag

Forsíða bókarinnar

Hér er á ferðinni dásemdarbókin Matthildur eftir hinn ástæla rithöfund Roald Dahl. Þessi sérútgáfa er tengd aðlögun Netflix á söngleiknum Matthildi sem hefur fengið frábærar umsagnir gagnrýnenda eftir forsýningar. Bókin er gefin út í takmörkuðu upplagi.

Matthildur er lítil hnáta sem er einstaklega hugrökk, dugleg og eldklár. Hún sættir sig ekki við kúgun af hálfu yfirvalda sem eru bæði ósanngjörn og eigingjörn, hvort sem um er að ræða foreldra eða skólastjóra. Hrappur og Mylla, foreldrar hennar, eru einstaklega misheppnaðir sem slíkir og hugsa helst um eigin áhugamál, eins og bingó og sölu á notuðum bílum með breyttum vegalengdarmælum. Þau undrast einnig hvað Matthildur les mikið – í stað þess að fylgjast með endalausum þáttaröðum í sjónvarpinu eins og þau! Í skólanum ríkir Krýsa, fyrrverandi sleggjukastari, með harðri hendi. Þar er líka kennari Matthildar, hún Una, sem á eftir að breyta miklu í lífi hennar til hins betra. Til tíðinda dregur í skólanum þegar Matthildur tekur til sinna ráða með aðstoð félaga sinna. Hvernig fer fyrir Krýsu? Heima hjá Matthildi dregur einnig til tíðinda og Hrappur neyðist til að bregðast skjótt við þegar lögreglan fer að spyrja óþægilegra spurninga um vafasamar aðferðir bílasalans snjalla. Hvernig bregst Matthildur við áætlun Hrapps?