Með vindinum liggur leiðin heim
Töfrar lífsins gerast í lítilli vík í norðri þegar andarungar skríða úr eggjum. Einn unginn gleymir sér yfir undrum veraldar og týnist. Gamall lífsreyndur hundur finnur ungann og með þeim tekst einstök vinátta.
Töfrar lífsins gerast í lítilli vík í norðri þegar andarungar skríða úr eggjum. Andamamma brýnir fyrir börnum sínum hversu mikilvægt sé að halda hópinn en einn þeirra gleymir sér yfir undrum veraldar og týnist. Gamall lífsreyndur hundur finnur ungann og með þeim tekst einstök vinátta. Þrátt fyrir að unginn finni öryggi og ást hjá hundinum og fjölskyldu hans þá býr innra með honum þráin eftir frelsi fuglanna. Höfundur bæði texta og mynda er Auður Þórhallsdóttir.