Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Miðbæjarrottan

Þetta kemur allt með kalda vatninu

  • Höfundur Auður Þórhallsdóttir
  • Myndhöfundur Auður Þórhallsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Í þessari annarri bók um Miðbæjarrottuna Rannveigu kemur ekkert vatn úr krananum einn morguninn þegar hún vaknar. Hún áttar sig á hversu dýrmætt það er að hafa hreint rennandi vatn en þannig hefur það ekki alltaf verið í Reykjavík. Rannveig fær ömmu Bardúsu með sér í lið til að komast að því hvað varð um vatnið.

Miðbæjarrottan: Þetta kemur allt með kalda vatninu er önnur bókin um Miðbæjarrottuna Rannveigu. Bókin er bæði fróðleg og ríkulega myndskreytt en höfundur bæði texta og mynda er Auður Þórhallsdóttir.