Miðbæjarrottan
Húsin í bænum
Þetta er þriðja bókin um miðbæjarrottuna Rannveigu. Nú kynnist hún gömlum fjósketti sem saknar sveitarinnar og segir húsin í Reykjavík vera ljót og leiðinleg en með hjálp frá Rannveigu og ömmu Bardúsu fer Fjalar fjósköttur að sjá borgina með öðrum augum.
Í þessari þriðju bók um miðbæjarrottuna Rannveigu hittir hún fyrir gamlan fjóskött sem saknar sveitarinnar og segir húsin í Reykjavík vera ljót og leiðinleg. Hún er að vonum undrandi yfir þessum yfirlýsingum en með aðstoð ömmu Bardúsu tekst þeim að sýna honum að ævintýrin leynast víðar en bara í sveitinni og allt í einu fara húsin í bænum að taka á sig aðra mynd.