Myndlist á Íslandi - Art in Iceland

6. tölublað

Forsíða kápu bókarinnar

Tímaritið er hugsað sem miðja fyrir myndlistarumfjöllun hér á landi – öflugur vettvangur fyrir umræðu og gagnrýna greiningu á myndlist og stöðu myndlistarfólks á Íslandi, auk þess sem rýnt er í gagnkvæmt samband íslensku senunnar við umheiminn. Tímaritið er gefið út einu sinni á ári í veglegri og fallegri prentútgáfu jafnt á íslensku og ensku.

Í sjötta tölublaði af Myndlist á Íslandi er fjallað á greinandi hátt um starfsumhverfi myndlistarfólks og stöðu myndlistar hér á landi. Þar er jafnframt rætt um listasöguleg viðfangsefni, valdar sýningar og það sem þótti til tíðinda á undangengnu ári. Í blaðinu er einnig birt umfjöllun um tilnefningar og verðlaunahafa Íslensku myndlistarverðlaunanna 2026.