Njála
Viðhafnarútgáfa Brennu-Njáls sögu grundvölluð á rómuðum frágangi Jóns Böðvarssonar. Textinn er með nútímastafsetningu og vönduðum orðskýringum. Bókin er ríkulega skreytt myndum Þórhildar Jónsdóttur frá Lambey í Fljótshlíð. Njála er óumdeilt flaggskip Íslendingasagna og þessi gerð hennar er sannkallað stofustáss á sófaborðum íslenskra heimila.
Söguþráðurinn er margslungin flétta ásta og afbrýði, átaka og hefnda, sæmdar og auðmýktar, hreinlyndis og fláttskapar. Við kynnumst skúrkum og öðlingum, glæsimennum og þrælum, fögrum konum og fláráðum, orðheldni og undirferli. En ljósar hliðar finnast jafnvel á hinum örmustu þrjótum.
Njálufélagið er stofnað í þeim tilgangi að hefja Brennu-Njáls sögu til þeirrar virðingar sem henni ber í íslenskum bókmenntum og stuðla með því að varðveislu íslenskrar tungu og menningararfs þjóðarinnar. Þessi bók verður hornsteinn þess mikla starfs sem fram undan er. Hátt í eitt þúsund manns keyptu bókina í forsölu og skráðu nöfn sín á lista í bókinni þar sem Njálufélaginu er árnað heilla í verkefnum sínum á komandi árum.