Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Njála hin skamma

  • Höfundur Kristín Ragna Gunnarsdóttir
  • Myndhöfundur Kristín Ragna Gunnarsdóttir
Forsíða kápu bókarinnar

Þessi myndabók byggist á einni ástsælustu Íslendingasögunni, Brennu-Njáls sögu, sem rituð var seint á þrettándu öld en lýsir atburðum sem gerðust þrjú hundruð árum fyrr. Njáls saga er æsispennandi örlagasaga sem hverfist m.a. um ást, öfund, vinskap, svik, forlagatrú, hefnd, hetjudáðir, sæmd, lagaklæki og sættir.

Einnig fáanleg á ensku.

Hér hefur listakonan og rithöfundurinn Kristín Ragna Gunnarsdóttir dregið Njálu saman í stuttu máli og myndum til að fólk geti kynnst nokkrum af litríkum persónum hennar og áttað sig á þræði sögunnar í grófum dráttum.

Kristín Ragna hefur áður fengist við að túlka Njáls sögu en hún hannaði og teiknaði Njálurefilinn sem saumaður var á Njáluslóðum.