Norðurljós 1

Ferðin til Jötundalsins

Forsíða kápu bókarinnar

Sonja er venjuleg stelpa sem er að fara að fermast. Nótt eina fær hún óvænta heimsókn frá undarlegri en þó sérkennilega kunnuglegri veru. Veran er af öðrum heimi og býður Sonju í för með sér. Þau ferðast með norðurljósunum til heims sem er gjörólíkur hennar veröld, heims sem býr í okkur öllum sem höfum gefið ímyndunaraflinu lausan tauminn.