Orðasafn í leiklist

Forsíða kápu bókarinnar

Í Orðasafni í leiklist er að finna þann orðaforða sem leikarar, sviðslistamenn, leikstjórar, sviðsmenn, leikmyndahönnuðir og búningahönnuðir nota í störfum sínum í tengslum við leiklist og leikhús og að auki leiklistarkennarar í störfum sínum. Orðin eru skilgreind og jafnframt fylgja enskar þýðingar.

Orðasafnið er ætlað grunn- og framhaldsskólanemendum og nýtist vel við kennslu í leiklist. Safnið ætti einnig að gagnast kennaranemum þegar þeir hefja leiklistakennslu í skólum. Með markvissri kennslu á hugtökum leiklistar eykst skilningur nemenda á listgreininni og í skapandi vinnu nýtist orðasafnið sem verkfæri til meðvitaðrar og nákvæmrar tjáningar.