Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Ósýnilegar konur

  • Höfundur Caroline Criado Perez
  • Þýðandi Sæunn Gísladóttir
Forsíða bókarinnar

Gögn og gagnasöfnun eru undirstaða heimsins í mörgum skilningi. Til að mynda reiðum við okkur á tölur þegar kemur að því að ráðstafa fjármunum og taka afdrifaríkar ákvarðanir í efnahagslegri uppbyggingu, heilbrigðisþjónustu og menntakerfinu. Vandamálið er hins vegar að stór hluti gagnasöfnunar lítur á karlkynið sem sjálfgefið en kvenkynið sem frávik. Afleiðingin er að hlutdrægni er samofin kerfinu á öllum sviðum. Konur gjalda þessari hlutdrægni dýrum dómi, til að mynda með tíma sínum, peningum og oft heilsu sinni.

Gögn og gagnasöfnun eru undirstaða heimsins í mörgum skilningi. Til að mynda reiðum við okkur á tölur þegar kemur að því að ráðstafa fjármunum og taka afdrifaríkar ákvarðanir í efnahagslegri uppbyggingu, heilbrigðisþjónustu og menntakerfinu. Vandamálið er hins vegar að stór hluti gagnasöfnunar tekur ekki tillit til kyns og lítur á karlkynið sem sjálfgefið en kvenkynið sem frávik. Afleiðingin er að hlutdrægni er samofin kerfinu á öllum sviðum. Konur gjalda þessari hlutdrægni dýrum dómi, til að mynda með tíma sínum, peningum og oft heilsu sinni.

Caroline Criado Perez er rómuð talskona feminista. Í Ósýnilegum konum rannsakar hún sláandi rætur kynjamismununar og skoðar líf kvenna á heimilinu, á vinnustaðnum, á opinberum vettvangi, í heilbrigðiskerfinu og á fleiri stöðum daglegs lífs. Bókin byggir á hundruðum rannsókna víðsvegar um heiminn og er skrifuð á kraftmikinn og hnyttinn hátt með vænum hliðarskammti af leiftrandi greind. Ósýnilegar konur markar tímamót og er ógleymanleg afhjúpun.