Prestaköll, sóknir og prófastsdæmi á Íslandi I-II

Forsíða kápu bókarinnar

Í tíu aldir hefur kirkjan sinnt mikilvægu hlutverki í lífi landsmanna. Saga hennar er frá kristnitöku samofin sögu þjóðarinnar – tíundarkerfið tengdist prestum og kirkjunni og fæðingar, skírnir, giftingar, andlát, veikindi og heimilisfesta voru skráð í bækur kirkjunnar. Verkið er grundvallarrit um félagsgerð og samfélag fyrri alda.

Skjalasöfn kirkna og biskupsstóla, sem varðveitt eru í Þjóðskjalasafni, eru um 360 hillumetrar og ná frá tólftu öld til samtímans. Á árunum 1985‒1990 endurskráði Björk Ingimundardóttir skjalavörður skjalasöfn presta og prófasta og vann jafnframt að rannsóknum á söfnunum. Markmiðið var ekki síst að benda á fjölþætta möguleika til þess að nýta skjalasöfn kirkjunnar í heild, rannsaka þau og vekja athygli á skjölunum sem grundvallarheimild um fjölmörg svið samfélagsins. Auk skjalaskrárinnar sjálfrar var verkefnið rannsókn á því hvar mörk sókna, prestakalla og prófastsdæma lágu og hvernig þau hafa breyst í aldanna rás. Sú rannsókn birtist hér í tveimur bindum í fallegri öskju ásamt tveimur veggspjöldum með kortum af skiptingu prestakalla í landinu árin 1801 og 1920.