Rósir fyrir íslenska garða
Höfundur miðlar áratugalangri reynslu sinni og Rósaklúbbs Garðyrkjufélags Íslands af rósarækt við íslenskar aðstæður. Þekkingunni er miðlað með hagnýtri nálgun og skýrum ráðleggingum um þau atriði sem ráða mestu um árangur í ræktun rósa hér á landi.
Líklega er ekkert tákn um ást, yndi og leyndardóma mannlegra tilfinninga greypt jafn sterkt í vitund mannkynsins og rósin; ímynd hennar og ilmur. Rósir hafa á öllum tímum heillað fólk með fegurð sinni, fjölbreytileika og táknrænu gildi.Þær hafa verið notaðar til skrauts og lækninga, borið boð um ást og sorg, og orðið tákn fyrir það sem ekki verður með orðum sagt.
En geta rósir raunverulega dafnað við íslenskar aðstæður? – Já, sannarlega með vönduðu vali á yrkjum og réttri umhirðu.
Yfir 250 rósayrki eru kynnt í bókinni, mörg sem dafna vel með lágmarksumhirðu, og önnur sem þurfa skynsamlegt staðarval og vandaða umönnun til að ná sínu fegursta.
Vilhjálmur Lúðvíksson hefur stundað garð- og skógrækt í yfir 65 ár. Hann hefur gegnt formennsku í Garðyrkjufélagi Íslands og Rósaklúbbi Garðyrkjufélagsins, auk þess að starfa fyrir Skógræktarfélag Íslands. Hann er efnaverkfræðingur að mennt og starfaði lengst af sem forstöðumaður Rannsóknarráðs Íslands og RANNÍS.
„Rósir fyrir íslenska garða er bók sem allt áhugafólk um gróður og ræktun á að eiga og lesa sér til fróðleiks og skemmtunar.“
Vilmundur Hansen, Ræktaðu garðinn þinn