Skálholt volume III

Excavations of a Bishop´s residenc and school. Volume 3: The ecofacts and synthesis

Forsíða kápu bókarinnar

Þriðja og síðasta bindið í ritröðinni Skálholt I-III. Árið 2002 hóf Fornleifastofnun Íslands umfangsmiklar rannsóknir í Skálholti. Uppgröfturinn stóð yfir næstu sex sumur og varð einn sá viðamesti sem fram hefur farið hér á landi.

Við rannsóknina komu í ljós hús og fjölbreyttar mannvistarleifar sem varpa ljósi á daglegt líf biskupa, þjónustufólks og skólapilta á tímabilinu 1690-1950 á einum mikilvægasta sögustað landsins. Í þessu þriðja bindi er sjónarhornið víkkað með rannsóknum á plöntuleifum, skordýrum og dýra- og fiskbeinum úr uppgreftinum, sem veita meðal annars mikilvægar upplýsingar um fæðu, búskap og umhverfi í Skálholti. Jafnframt eru niðurstöður rannsóknarinnar í heild dregnar saman, fjallað er um fjölbreytta starfsemi á staðnum og Skálholt sett í víðara samhengi, meðal annars með tilliti til samfélags, efnahags og umhverfis.