Sovétför Sniglabandsins
Viðburðarík frásögn af kostulegu ferðalagi þessarar uppátækjasömu hljómsveitar haustið 1989, rétt áður en Sovétríkin liðuðust í sundur. Sagan leiftrar af lífsgleði og ævintýraþrá. Ríkulega myndskreytt.
Hljómsveitin Sniglabandið fór í ævintýralegt ferðalag til Sovétríkjanna í september 1989. Á þeim tíma voru afskaplega lítil samskipti milli austurs og vesturs, þó örlítið væri farið að rofa til í kjölfar leiðtogafundar Reagans og Gorbasévs í Höfða. Hópurinn fór á 5 mótorhjólum og gömlum gulum póstvagni sem keyptur var í Þýzkalandi. Gist var í heimahúsum, svo hljómsveitin komst í nána snertingu við heimafólk og öðlaðist ofurlitla innsýn í hugarheiminn og tilveruna í Sovétríkjunum rétt áður en Berlínarmúrinn féll og allmikil uppstokkun varð á þessum heimshluta.
Frásögnin iðar af lífsgleði og ævintýraþrá. Bókin er myndskreytt af Einari Rúnarssyni, en einnig getur að líta nokkrar ljósmyndir úr ferðinni.