Spássían

Forsíða kápu bókarinnar

Ritið kom út í tengslum við samnefnda haustsýningu Hafnarborgar árið 2026. Útgáfan er á íslensku og ensku og hefur að geyma texta eftir sýningarstjórana Katrínu Björgu Gunnarsdóttur og Úlf Braga Einarsson, auk kynningar á verkum og listamönnum sýningarinnar. Einnig er birtur í ritinu fjöldi ljósmynda eftir Vigfús Birgisson.

Í textum ritsins er sýningarrýmið skoðað sem virkur þátttakandi fremur en hlutlaus umgjörð og sjónum beint að krókum og kimum, þ.e. spássíum rýmisins, sem sjaldan eru í forgrunni en búa yfir ýmsum möguleikum. Þá er jafnframt fjallað um hvernig skynjun okkar og venjur móta það sem við sjáum og hvað færist á jaðar athygli okkar.