Stjórnsýsla og skjalasöfn
Framkvæmd skjalavörslu og skjalastjórnar á Íslandi
Opinber skjalasöfn gegna mikilvægu hlutverki í samfélaginu. Þau varðveita minni þjóðar, tryggja réttindi borgaranna og hag stjórnsýslunnar. Þjóðskjalasafn er framkvæmdaraðili skjalavörslu og skjalastjórnar á Íslandi. Í bókinni er fjallað um þróun langtímavörslu skjala, eftirlitshlutverk Þjóðskjalasafns og mikilvægi skjala í stjórnsýslunni.
Starfsemi Þjóðskjalasafns Íslands hefur breyst mikið með tilkomu rafrænnar stjórnsýslu. Traust skjalahald stjórnsýslunnar er lykillinn að varðveislu og aðgengileika upplýsinga um hagsmuni og réttindi borgaranna eða stjórnsýslu og sögu þjóðarinnar. Þjóðskjalasafn hefur það hlutverk að setja reglur um skjalavörslu og skjalastjórn stjórnsýslunnar. Opinber skjalasöfn hafa eftirlit með framkvæmd þeirra, þannig að tryggð sé örugg langtímavarðveisla gagna fyrir notendur framtíðarinnar.
Í bókinni eru tíu greinar eftir níu höfunda sem takast á við ýmsa þætti í þróun langtímavörslu skjala, eftirlitshlutverk Þjóðskjalasafns Íslands og mikilvægi skjala í stjórnsýslunni.