Súkkulaðidagatalið

Forsíða kápu bókarinnar

Það er fyrsti desember og amma hefur gefið Katrínu girnilegt súkkulaðidagatal. Hún má bara opna einn glugga á dag, en það er erfiðara en hún hélt að standast freistinguna. Hlý og skemmtileg saga um vináttu, freistingar og lítil mistök – og um hugrekkið sem stundum þarf til að segja sannleikann.

Við fylgjumst við með Katrínu uppgötva að það er allt í lagi að gera mistök. Það sem skiptir mestu máli er að hafa hugrekki til að viðurkenna þau, biðjast afsökunar og læra af þeim.

Sagan hvetur börn til að staldra við, hlusta á eigin tilfinningar og uppgötva að samviskan er ekki óvinur heldur leiðarvísir sem hjálpar okkur að velja rétt. Hún sýnir að mistök eru eðlilegur hluti af lífinu og að sannleikurinn, fyrirgefningin og kærleikurinn geta alltaf vísað okkur leiðina heim.