Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Svefngarðurinn

  • Höfundur Aðalsteinn Emil Aðalsteinsson
Forsíða bókarinnar

Sögurnar í Svefngarðinum eru ólíkar en tengjast þó ýmsum þráðum. Saman mynda þær ferðalag gegnum tímann – allt frá upphafi síðustu aldar til fjarlægrar framtíðar. Afskræmdir minningarheimar og svikul undirmeðvitundin gera skilin milli draums og veruleika æði óskýr. Fyrsta bók þessa unga og áhugaverða höfundar, 500 dagar af regni, kom út í fyrra og vakti verðskuldaða athygli. Hér eru efnistökin ólík en ekki síður heillandi.