Systrablóð
Íris er dáin. Friðrika neitar að sleppa henni.
Þegar Íris finnst látin fyrir neðan tröppur við afskekktan sumarbústað í Grímsnesi bendir allt til þess að um hörmulegt slys hafi verið að ræða. Málinu er lokað og fjölskyldan reynir að halda áfram.
En hálfu ári síðar er eineggja tvíburasystir hennar, Friðrika, enn sannfærð um að Íris sé hjá henni. Hún heyrir rödd hennar, sér hana birtast og finnur nærveru hennar. Þegar Friðrika ræðst skyndilega á mann sem tengdist Írisi vakna spurningar sem hefðu átt að vera grafnar með henni.
Þórey frá rannsóknarlögreglunni er fengin til að skoða málið að nýju. Fljótlega kemur í ljós að fólkið sem stóð Írisi næst hefur hvert sína útgáfu af sannleikanum – og sína ástæðu til að þegja.
En hvað ef Friðrika er ekki að missa tökin á raunveruleikanum?
Hvað ef látin systir hennar er að reyna að segja henni hvað gerðist?
Systrablóð er sálfræðileg spennusaga um systur sem ekki er hægt að skilja að, fjölskyldu sem hefur byggt líf sitt á leyndarmálum og sannleika sem enginn vill horfast í augu við.
Sagan er sjálfstætt framhald spennusagnanna SJÚK og GIRND.