Það er svo margt sem þú veist að þú veist ekki fyrr en þú veist það

Forsíða kápu bókarinnar

**Það er svo margt sem þú veist að þú veist ekki, fyrr en þú veist það**

Hvað ef það sem heldur þér föstum er ekki það sem þú veist ekki, heldur það sem þú hefur aldrei staldrað við til að sjá?

Þessi bók er ekki handbók um hvernig þú eigir að lifa. Hún er spegill.

Í gegnum persónulegar frásagnir, áhrifamiklar mannlífssögur, biblíulega visku og í

**Ferðalag um völundarhús vitundarinnar**

**Hversu margt í lífi þínu hefur þú samþykkt án þess að taka nokkurn tíma meðvitaða ákvörðun um það?**

Við lærum snemma að aðlagast. Að standa okkur. Að bíta á jaxlinn. Að gera það sem ætlast er til af okkur.

Við byggjum upp líf, tökum að okkur hlutverk, myndum sambönd og tileinkum okkur venjur. Smám saman verður hið kunnuglega að því sem við köllum persónuleika okkar.

En hvað gerist þegar við stöldrum við og spyrjum hvort lífið sem við lifum sé í raun það líf sem við viljum?

Í þessari persónulegu og umhugsunarverðu bók býður Guðbjörn Gunnarsson lesandanum í ferðalag um völundarhús mannlegrar vitundar.

Hann dregur upp myndir úr eigin lífi, þar sem glíman við sjálfsmyndina, þörfin fyrir samþykki, innri dómarinn og áralangar venjur verða að spegli sem margir kunna að þekkja sig í.

Við kynnumst fólki sem hefur allt til alls en finnur samt fyrir tómarúmi. Fólki sem bíður eftir rétta augnablikinu, heldur fast í gamla sjálfsmynd eða reynir svo lengi að þóknast öðrum að það gleymir sjálfu sér.

Við sjáum hvernig veggir rísa í samskiptum án þess að nokkur ætli sér að byggja þá. Hvernig líkaminn getur borið það sem hugurinn hefur lært að þagga niður. Og hvernig lítil ákvörðun, ein spurning eða augnablik af nærveru getur opnað nýja sýn.

Í gegnum tólf kafla fléttast saman persónulegar sögur, mannlífslýsingar, léttar og stundum gamansamar dæmisögur, biblíuleg viska og íhugun um það sem gerir okkur mannleg.

Hér er ekki verið að predika, dæma eða afhenda lesandanum tilbúna uppskrift að betra lífi.

Þvert á móti.

Bókin gefur rými fyrir þögnina, spurningarnar og þá undarlegu uppgötvun að við getum vitað eitthvað alla ævi án þess að hafa nokkurn tíma raunverulega séð það.

Hún fjallar um að vakna til vitundar um eigin mynstur, finna muninn á því að vera upptekinn og því að vera raunverulega mættur, og sjá hvernig það sem við gerum ekki getur mótað lífið ekki síður en það sem við gerum.

Umfram allt er þetta bók um heimkomu.

Ekki heimkomu á ákveðinn stað, heldur til sjálfs sín.

Því kannski er það ekki meiri þekking sem okkur vantar.

Kannski þurfum við aðeins að staldra nógu lengi við til að sjá það sem hefur verið fyrir augunum á okkur allan tímann.

**Það er svo margt sem þú veist að þú veist ekki, fyrr en þú veist það.**

*Eftir Guðbjörn Gunnarsson*

Umsögn Þorgríms Þráinssonar á Facebook

„Ég las merkilega bók í gær.
Stórmerkilega.
Með þeim áhugaverðari sem ég hef lesið.
Ef þið viljið hrista upp í lífi ykkar og hætta að hjakka í sama farinu í skjóli óttans og letinnar
er þessi bók skyldu lesning

Þorgrímur Þráinsson, Rithöfundur“