Það sem þú þráir

Forsíða bókarinnar

Áleitin og grípandi skáldsaga sem fjallar um unga konu á krossgötum, ástina, ranghugmyndir og þráhyggju.

Líf Gunnlaðar tekur stakkaskiptum þegar hún gerist au pair á glæsilegu heimili Perlu og Sölva í London. Þau virðast lifa hinu fullkomna lífi: eru gullfalleg og farsæl, eiga dásamleg börn og búa við vellystingar. Gunnlöð hefur orðið eilítið utanveltu heima á Íslandi og eygir tækifæri til að hefja nýtt og spennandi líf fjarri fortíðinni. En ekkert er eins og það sýnist. Undir fagurri ásýnd hlutanna leynast leyndarmál og þar kraumar þrá sem verður að fullnægja.

Það sem þú þráir er önnur skáldsaga Sjafnar Asare sem bar sigur úr býtum í handritasamkeppni Storytel árið 2020 fyrir Flæðarmál. Hér er um að ræða áleitna og grípandi skáldsögu sem fjallar um unga konu á krossgötum, ástina, ranghugmyndir og þráhyggju en sem varpar um leið ljósi á hið ljóta sem stundum leynist handan við huluna.