Þagna­fár

Forsíða kápu bókarinnar

Höfundur skáldar sögu föður síns sem fæddist í Hælavík á Hornströndum. Ljóðin fjalla um áföll sem faðirinn lendir í sem drengur og fylgja honum alla ævi og valda honum iðulega búsifjum. Ljóðin sýna líf föðurins og flótta hans frá þessum áföllum sem brjótast fram þegar hann jarðsetur yngsta son sinn.

Ljóðin lýsa magnþrungnum harmi og tekur myndmálið mið af hrikalegri náttúru á Hornströndum þar sem hann ólst upp. Þar lenti hann í miklu áfalli sem lagðist mjög á sál hans ekki síst vegna algerrar þöggunar. Í sjötíu bragandi dúfur frá 2024 fjallaði Garibaldi um samband sitt við yngsta bróður sinn sem er jarðsunginn í Þagnafári – en fyrrnefnda bókin var kölluð bróðurtorrek; Þagnafár gæti verið í senn bróðurtorrek og sonartorrek.