The Power of Sociology
Grasping Our Unequal World
Alþjóðleg inngangsbók í félagsfræði fyrir lesendur sem vilja öðlast dýpri skilning á tengslum einstaklings og samfélags. Bókin veitir yfirlit yfir helstu undirsvið félagsfræðinnar, með áherslu á félagslegan ójöfnuð, alþjóðlegan samanburð og samfélagsvirkni. Aðgengileg fræðileg umfjöllun og fjölbreytt myndefni dýpka skilning lesenda á samfélaginu.
Höfuðmarkmið bókarinnar er að kynna lesendur fyrir félagsfræði með því að undirstrika megin viðfangsefni fræðigreinarinnar: Félagslegan ójöfnuð. Það sem einkennir einnig bókina er áherslan á vald, sem er eitt allra mikilvægasta hugtak félagsfræðinnar. Bókin hefur aukinheldur alþjóðlegri skírskotun en aðrar inngangsbækur í félagsfræði. Jafnframt hvetur efni bókarinnar lesendur til að líta á sig sem virka þátttakendur í samfélaginu sem geta lagt sitt af mörkum til að gera nærumhverfi sitt og heiminn betri.
Bókin er alþjóðlegri en aðrar bækur af þessu tagi og hentar víða til kennslu, þar með talið hérlendis. Bókin inniheldur þó nokkur íslensk dæmi og þá er forsíðumynd bókarinnar frá Íslandi. Mikið er lagt í bókina, sem inniheldur 16 kafla og fjölda mynda, grafa og skýringarmynda í lit. Hægt er að kaupa bókina sem kilju, rafbók og í stafræna lærdómsumshverfinu SAGE Vantage, sem býður upp á ýmsa valkosti á borð glósur, myndbönd og hljóðbókaspilara.