Þegar hugurinn fer að blómstra
Heiðarleg og persónuleg frásögn um áföll, kvíða og kulnun. Saga um það hvernig fortíðin getur haldið áfram að móta líðan og viðbrögð í núinu – og hvernig ný sýn á eigin reynslu getur skapað meiri mýkt og dýpri tengingu inn á við.
Sagan nær frá barnsaldri til fullorðinsára og segir frá áföllum og ótta, dugnaði sem varð að bjargráði, kvíða, kulnun og þeirri vegferð sem hófst þegar líkaminn sagði loks stopp.
Þegar höfundur fór að leita svara tók fortíðin smám saman að birtast í nýju samhengi. Brot úr lífssögunni fóru að raðast saman og varpa ljósi á það hvernig fyrri reynsla hafði haldið áfram að móta líðan, viðbrögð og tengsl í núinu.
Þótt sagan sé persónuleg snertir hún reynslu sem margir þekkja: sárin sem við berum, baráttuna sem enginn sér og spurningarnar sem vakna þegar við förum að horfa á eigið líf með öðrum augum.
Þetta er saga um leit að skilningi á því sem býr undir yfirborðinu og um vonina sem getur falist í aukinni meðvitund, mildi og nýjum tengslum við sjálf okkur.
„“