Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Út um víðan völl

  • Höfundur Júlíus Sólnes
Forsíða bókarinnar

Sagt er frá lífi, ævintýrum og ferðum höfundar og konu hans, Sigríðar Maríu. Fjallað er um fjölbreyttan feril hans við Háskóla Íslands, aðkomu að Kröfluvirkjun og stofnun umhverfisráðuneytisins. Tilurð og örlög Borgaraflokksins eru einnig rakin á greinargóðan hátt.

Í þessari bók er víða komið við á löngum og viðburðaríkum æviferli. Sagt er frá lífi, ævintýrum og ferðum mínum og konu minnar, Sigríðar Maríu. Við kvæntumst ung, og sem oftast tók hún virkan þátt í heimshornaflakki mínu. Hún hefur alla tíð verið mér stoð og stytta og svo sannarlega auðgað líf mitt. Þetta er því ekki síður ævisaga hennar.

Innan við þrítugt áttum við orðið þrjú mannvænleg börn, höfðum dvalizt langdvölum í Tókjó og heimsótt mörg þjóðlönd í Austurlöndum fjær. Við áttum heima í Danmörku í hartnær 14 ár. Ekki munaði miklu, að fjölskyldan ílentist þar og börnin yrðu Danir fremur en Íslendingar.

Ég segi einnig frá starfi mínu við Háskóla Íslands, aðkomu minni að Kröfluvirkjun, sem setti þjóðfélagið nærri á hvolf út af illvígum deilum, og þingmennsku minni fyrir Borgaraflokkininn. Saga hans hefur aldrei verið rakin skilmerkilega á grundvelli fundargerða og skriflegra gagna. Hef ég reynt að bæta úr því. Þá er greint frá stofnun umhverfisráðuneytisins, sem hefur orðið eitt af lykilráðuneytum stjórnarráðsins. Hatrömm andstaða á Alþingi gegn stofnun þess mun lengi í minnum höfð.