Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Útlit loptsins

Veðurdagbók

Forsíða kápu bókarinnar

Útlit loptsins er í senn myndlistarverk í 366 hlutum, athugun á veðri tveggja ára á ólíkum öldum og dagbók höfundarins.

Einar Falur var staðarlistamaður í Vatnasafni í Stykkishólmi þegar hann byrjaði að skrá í ljósmynd veðrið á hádegi dag hvern, hvar sem hann var staddur. Jafnframt bar hann opinbera veðurskráningu þess staðs saman við veðurathugun Árna Thorlaciusar kaupmanns í Stykkishólmi 170 árum fyrr sem var fyrstur Íslendinga til að skrásetja veður með markvissum hætti. Jón Kalman Stefánsson ritar formála og Einar Falur inngang. Einnig er birt ljóð eftir Anne Carson um veðrið í Stykkishólmi. Sigrún Sigvaldadóttir hannar ásamt höfundi.