Athugið að þessi bók er úr eldri útgáfu Bókatíðinda og birt hér með fyrirvara um mögulega sé ekki um að ræða nýjustu upplýsingar. Hafið samband við útgefanda til að fá nánari upplýsingar um hvort bókin sé fáanleg.

Vala víkingur og epli Iðunnar

  • Höfundur Kristján Már Gunnarsson
  • Myndhöfundur Sól Hilmarsdóttir
Forsíða bókarinnar

Nú eru Vala víkingur og skipið hennar Breki dreki komin í hann krappan! Gyðjan Iðunn lendir óvænt um borð með gulleplin sín, hundelt af þursinum Þjassa og lævísa guðinum Loka. En af hverju vilja þeir epli Iðunnar og hvað getur Vala gert til að stoppa þá?
Vala Víkingur er sjálfstæð og góðhjörtuð stelpa sem ferðast um heima norrænu goðafræðinnar og lendir í stórkostlegum, spennandi og fyndnum ævintýrum ásamt skipinu sínu, Breka dreka.