Yndishrúga
Steinunn Arnbjörg fremur ljóð og tónlist. Tónsmíðar hennar, ljóð og lög, má heyra á tónleikum, plötum og í útvarpi. Prentuð finnast ljóð hennar í bókmenntatímaritinu Stínu og fyrri ljóðabókum. Yndishrúga geymir andardrátt, eyrnalokka víðs fjarri, ímyndað rifbein. Hugsanlega býr hún yfir dásemdum.