Davíðstíminn
Sjálfstæð saga leiðtoga og lands
Á áttunda og níunda áratug síðustu aldar ákvað hópur ungra frjálshyggjumanna undir merkjum Sjálfstæðisflokksins að gera „uppreisn" og breyta Íslandi. Helsti leiðtogi þeirra varð Davíð Oddsson, sem átti eftir að verða einn áhrifamesti og jafnframt einn umdeildasti leiðtogi Íslands. Þetta er saga Davíðs og samfélagsins sem hann umbylti.