Höfundur: Moira Dís Bichard

Heimskaut

Refurinn á snjóbreiðunni keppist við það hvern dag að finna mat og komast í hlýja bælið sitt fyrir myrkur. Stundum er hann heppinn en alls ekki alltaf. Á erfiðum og flóknum degi upplifir litli refurinn eitthvað óvænt og fallegt. Hringrás náttúru og fegurðin í hinu látlausa birtast í þessari hugljúfu heimskautasögu.