Á bláþræði

Forsíða kápu bókarinnar

Ally Morales á í nógu miklu basli þegar hún lendir upp á kant við hinn skapstóra og óþolandi myndarlega Dominic Russo. Þegar starfið tengir þau aftur saman verður strax ljóst að þau eiga erfitt með að þola hvort annað, en enn erfiðara með að hunsa aðdráttaraflið á milli þeirra. Krassandi skrifstofurómantík eftir margfaldan metsöluhöfund.

Á bláþræði er ein nýjasta bók Lucy Score, en ný-rómantískar bækur hennar hafa notið mikilla vinsælda hjá hlustendum Storytel. Lucy er margfaldur metsöluhöfundur sem oft hefur vermt efsta sætið á metsölulista New York Times. Á bláþræði er sjálfstæð bók og því ekki hluti af seríu en loka bókin í vinsælu Knockemout þríleiks-seríunni hennar kemur út vorið 2027. Á bláþræði er ein af vinsælustu bókum Lucy Score.